Þvílík Mannvonska!
23.11.2007 | 14:48
Jás, það er ljóst að heimurinn er ekki allsstaðar eins. Sum staðar er fólk dæmt til dauða með grýtingum, annars staðar er það hálshöggvið og svo þetta í Brasilíu.
Á Íslandi hefði þessi stelpa sloppið með aðvörun ef þetta hefði verið í fyrsta skipti og hún með hreina sakaskrá eða verið send á vandræðaheimili en hvað gera þau í Brasilíu?
Hafa hana innan um 20 karlmenn sem margnauðga henni!!! Þetta eru bara hrein og klár mannréttindabrot og brot á barnalögum!
En hvað veit maður? Kannski eru þannig lög ekki til í Brasilíu!
15 ára stúlka sett í fangaklefa með 20 mönnum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.