Kjánahrollur dauðans!
17.4.2009 | 18:04
Ég verð eiginlega bara að viðurkenna að ég fæ kjánahroll þegar ég heyri í Ástþóri Magnússon.
Alltaf að væla um hitt og þetta, t.d. að þau fái ekki að kynna sín stefnumál, sem er alger þvættingur, sérstaklega þar sem þeirra eina stefnumál er persónukjör.
Þau hafa engar hugmyndir um málefnin né neitt- heldur aðeins að "fólkið" eigi að fá að stjórna.
En hvernig á það að virka? Fólk er mismunandi eftir stéttum, fólk er í mismunandi stöðum. Þetta er einfaldlega hlutur sem myndi aldrei ganga upp.
Ég ætla ekki að vera með neinn áróður um einn né neinn flokk nema að ég mæli með að fólk FORÐIST að setja X við Sjálfstæðisflokkinn, Frjálslyndaflokkinn eða Lýðræðishreyfinguna.
Framboð P-lista úrskurðað gilt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Heilbrigðismál | Facebook
Athugasemdir
Það er komið að því
að íslendingar vakni
úr vondum draumi
mjög vondum draumi
Það er komin tíma til að trúa á betri tíma ekki blekkingar
þá er bara hægt að velja 2 flokka til að hreinsa samviskuna
ÞEIR ERU
X - P
X - O
Þessir tveir flokkar koma ferskir og sterkir inná þing
við þurfum flott fólk sem þorir að gera hlutina ::::::::
Zippo (IP-tala skráð) 17.4.2009 kl. 21:34
"En hvernig á það að virka? Fólk er mismunandi eftir stéttum, fólk er í mismunandi stöðum. Þetta er einfaldlega hlutur sem myndi aldrei ganga upp."
Ég held að það sé tilgangurinn með þessu sé að fólk úr mismunandi stéttum og stöðum fái að ráða (lýðurinn).
Daníel (IP-tala skráð) 18.4.2009 kl. 00:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.