Gestabók
Skrifa í Gestabók
Gestir:
Sæll kall
Hvað segist gott og hvernig hefurðu það? En mikið agalega er maður rosalega pirraður yfir gengi Villa núna undafarið og síðan mætir liðið næst United á Old Trafford!...ekki batnar það. Bara vona að liðið verði ekki niðurlægt þar. Villa á svo 2 heimaleiki í röð gegn Everton og West Ham og þá leiki verðum við að vinna en restin eru leikir gegn liðum í neðri hlutanum og þar má liðið ekki við að tapa mörgum stigum ef liðið ætlar sér 4 sætið. Það er súrt að þurfa núna að stóla á það að Arsenal tapi stigum,en þeir eiga nokkra erfiða leiki framundan eins og gegn Liverpool,Chelsea og United. Það er ennþá von,liðið hefði getað náð 8 stiga forskoti á Arsenal ef þeir myndu vinna Stoke fyrir nokkrum vikum,ég truflaðist þegar Stoke jöfnuðu síðan 2-2 og eftir það hefur Villa ekki unnið leik! Óþarfa tap gegn Man City þar væri gott að fá 1 stig úr þeim leik,og síðan tapaði Villa á heimavelli gegn Tottenham!!!það var gjörsamlega bara fáranlegt. Bróðir minn er harður Arsenal maður og það er þvílik spenna á milli okkar bræðrana...he he. Svo er annað að Arsenal má helst ekki vinna meistarakeppnina en þá kemst Villa ekki í keppnina það er að segja ef Villa nær 4 sætinu. Þetta verður stríð! P.s ef þú vild senda mér e-mail sendu það á frikki74@gmail.com Ég nota ekkert hotmailið
Friðrik Friðriksson, lau. 28. mars 2009