Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2007

Hálfur heili já?

Þetta sannar bara að konur þurfa aðeins annan helmingin á meðan karlar þurfa báða til að lifa af...
mbl.is Kona með hálfan heila lifir eðlilegu lífi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Smáís - SAMTÖK SATANS!

Er þetta ekki orðið fulllangt gengið eða? Að loka torrent.is og fá lögbann, í alvöru talað, þetta er bara rugl en ég get lofað því að nú flykkjast allir inná hina "sænsku" torrent síðu.

En í alvöru talað þá er SMÁÍS ekkert nema sínöldrandi apakettir sem mega.... (ritskoðað vegna slæms orðbragðs).

Ef mig langar til að kaupa íslenskan disk í framtíðinni þá mun ég reyna að ná samband við tónlistarmanninn sjálfan! Ég ætla ekki að fara að styrja Snæbjörn, Magga K og co... Ekki sjens í ... (Ritskoðað)


mbl.is Lögbannskrafa tekin til greina og Torrent vefnum lokað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Smá-ís - Smár Ís

Er þetta ekki orðið gott hjá Smáa Ísnum? Það eru held ég allir fyrir löngu hættir að hlusta á þetta endalausa væl í þeim varðandi sölutap og alls konar rugl.

Látum okkur nú sjá, þeir tala um að sala á íslenskum diskum sé að minnka útaf torrent.is en samt eru 15 af 20 söluhæstu diskunum ÍSLENSKIR!

Ég get alveg viðurkennt að ég hef sótt ýmislegt af torrent, þá eru það hlutir sem ég get annaðhvort ekki fengið í Íslenskum verslunum eða eitthvað sem ég myndi aldrei fyrir mitt litla líf versla, eins og t.d. SPRENGIHÖLLINA!

Ég er kannski kominn á hálan ís með að viðurkenna það en ég sótti diskinn með Sprengihöllinni til að heyra hvort þetta væri diskur sem ég myndi hafa áhuga á að kaupa því ég hef hingað til ekki heyrt neitt lag með þeim sem ég fýla, sá þá LIVE í eitt skipti og þeir voru bara ein lélegasta hljómsveit sem ég hef á ævi minni heyrt LIVE.

Eins og ég segi þá sæki ég stundum plötur af netinu, þá aðallega vegna forvitni til að heyra hvort þetta sé eitthvað sem ég fýla.
Eins og ef einhver félagi minn er að mæla með einhverri hljómsveit við mig, þá sæki ég frekar disk með henni heldur en að fara útí búð og kaupa disk því ég hef margoft brennt mig á að kaupa einhverjar plötur sem eru síðan algjört TRASH!

Ég innilega vona að litli ísinn okkar hætti þessarri vitleysu og fari að sinna sinni vinnu vegna þess að önnur hver staðhæfing sem þau koma með er algert RUGL.

Meira var það ekki
PEACE!


mbl.is Eigandi Torrent yfirheyrður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gefins?

Sá þetta í smáauglýsingu.

"Til gefins er rúmlega 200 ára gamall Sænskur vefstóll. Uppl. í s. 692 5018."

Allt í lagi, ef þessi stóll er rúmlega 200 ára gamall, af hverju er þá verið að gefa hann? Held að þessi auglýsing sé rugl en ég væri alveg till í 200 ára gamlan stól, ekki málið.


Tap - Tap - Tap

Ef ríkasti maður Noregs tapaði 19 milljörðum á einum degi, hvað ætli ríkasti maður Íslands tapi og græði þá  miklu daglega?
mbl.is Ríkasti maður Noregs tapaði 19 milljörðum á einum degi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rétt - Svo rétt

Auðvitað á þessi lögreglumaður að fá kæru fyrir morð, ég veit nú ekki undir hvaða flokki þetta myndi flokkast, sjálfsagt "manndráp af gáleysi" þar sem hann segir að kúlan hafi verið "slysaskot" þegar hann var að læsa byssunni eða hvað sem það var sem hann sagði.

Það þarf samt alvarlega að fara að taka á þessum boltabullum sem eru með slagsmál og leiðindi á nánast öllum leikjum í Ítalska boltanum.
Þetta verður bara að stoppa!


mbl.is Ítalskur lögreglumaður verður ákærður fyrir morð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Held að þetta sé gott fyrir báða aðila

Það er bara hollt fyrir Árna Gaut að breyta til, jafnvel reyna að komast að hjá liði utan Noregs, hann hefði bara mjög gott að því.

Vonandi lendir hann þó ekki í liði þar sem hann verður "varaskeifa", það yrði slæmt fyrir hann og landsliðið.


mbl.is Árni Gautur hættur hjá Vålerenga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eitthvað gruggugt í gangi hjá Luton Town?

Ég þekki nú 2 sem styðja Luton Town á Íslandi og annar þeirra er enginn annar en Stefán Pálsson, ofurbloggari, herandstæðingur og fyrrverandi Gettu Betur dómari.

En þessi kæra kemur í sjálfu sér engum á óvart og það munu sjálfsagt koma inn fleiri "gruggug" mál fram í sviðsljósið í framtíðinni enda hafa verið mörg "einkennileg kaup" seinustu ár.


mbl.is Luton Town ákært fyrir ríflega 50 atriði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Barry út?

Ég ætla svo rétt að vona að þetta sé bara fyrir þennan "æfingarleik" því Barry er búinn að vera einn besti leikmaður Englands í seinustu leikjum síðan er hann tekinn út fyrir "stjörnuleikmanninn" Frank Lampard.

Ég bara held að Gerrard og Lampard séu of líkir leikmenn til þess að ná saman á miðjunni en ég meina, til hvers að breyta einhverju sem virkar?

Þannig að ég vona að Barry komi aftur inní liðið gegn Króatíu á Miðvikudag því annars er McClaren ****


mbl.is Beckham í byrjunarliðinu gegn Austurríki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fínt fyrir Aston Villa, Scott Carson og Enska Landsliðið

Þetta er jákvæð frétt fyrir alla, Liverpool fær pening fyrir ungan og efnilegan markvörð, Aston Villa fá ungan, sterkar og metnaðafullan markvörð sem mun þá spila reglulega sem verður þá mjög jákvætt fyrir enska landsliðið þar sem margir telja að Carson verði Markvörður númer eitt hjá Enska landsliðinu innan tíðar.


mbl.is Benítez reiðubúinn að selja Carson
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband